Hér koma svo myndir af pizzunum.
Þessi er með mozzarella,hráskinku og klettasalati.
Muna bara að setja hráskinkuna og klettasalatið EFTIR að pizzan kemur úr ofninum:)
Og þessi með lauk,túnfisk,ansjósum,kapers og þistilhjörtum.
Ég set yfirleitt ekki ost á þessa…það væri þá helst rjómaostur eða parmesan…en bara í litlu magni. Verður eiginlega of þungt einhvern veginn með osti finnst mér.
Fyrir utan að mér finnst ostur og fiskur ekkert svakalega góð samsetning svona yfirleitt…en það er bara minn smekkur:)