Er Coca Cola ennþá að borga fyrir auglýsingu á aðaltorgi bæjarins? Bara spyr….
Á ekki að fara að gera eitthvað í þessu?
Það gengur ekki að planta þessu bara niður á Lækjartorg og svo ekki söguna meir…
Það var verið að selja eitthvað túristadót þarna í fyrra…fána eða einhver lukkutröll…kom frekar asnalega út. Sérstaklega þar sem það eru milljón túristabúðir í bænum!
Væri miklu nær að selja þarna miða á ýmsa viðburði.
Væri hægt að selja svona “last minute” miða líka…í leikhús, á tónleika, á íþróttaviðburði…Bara hvað sem er.
Og taka þessar ömurlegu kók-augýsingar niður og setja plakköt sem auglýsa þessa viðburði!
Þetta er til skammar svona.