5-6 bananar
100 gr kókosflögur
100 gr hveiti
100 gr hrásykur
100 gr haframjöl
100 gr kókosolía
1 egg
Eldfast mót smurt með smá kókosolíu.
Bananarnir skornir í sneiðar og settir í fatið ásamt kókosflögunum.
Kókosflögur eru stærri en kókosmjöl – má eflaust nota kókosmjöl, en mæli með að þið prófið þessar.
Kom ótrúlega vel út.
Þurrefnin saman – kókosolían brædd og bætt þar útí – og síðan er egginu bætt saman við.
Sett ofaná bananana og síðan inn í ofn – 180 gráður þar til gullið.