Rækjubuff,rófufranskar og rauðkál með rúsínum….

….og hvað eru mörg R í því!!

Rækjubuff með kúrbít

Skrældi kúrbítinn og reif hann svo á mandólíni, setti í sigti með smávegis af sjávarsalti og leyfði vökvanum af renna af því í svona hálftíma. Kreisti síðan eins mikið af vökvanum af og ég gat.

Reif rauðlaukinn fínt á rifjárni og blandaði síðan kúrbítnum saman við.

Grófsaxaði rækjurnar,saxaði kryddjurtinar smátt og bætti í skálina ásamt einu eggi, sesamfræjum,
sjávarsalti og hvítum pipar.
Hveitinu bætti ég síðan við smátt og smátt, þar til blandan var hæfilega þykk.

Það er misjafnt hvað þarf mikið af hveiti.
Deigið var frekar blautt hjá mér, en samt hélst það vel saman þegar ég steikti það.

450 gr rækjur
450 gr kúrbítur
50 gr rauðlaukur
2-3 hvítlauksrif

3-4 msk hveiti
2 msk sesamfræ
1 egg

fersk steinselja
ferskt basil

sjávarsalt
hvítur pipar

Leyfði þessu að vera aðeins í ísskápnum áður en ég steikti það svo á pönnu með ólívuolíu.

Úr þessu komu 10 buff…

Rauðkál með rúsínum

Skar niður lítinn rauðkálshaus, fleygði honum í pott með smávegis af ólívuolíu, nokkrum matskeiðum af hrásykri og smávegis af sjávarsalti.
Leyfði því að brúnast aðeins – ekki mikið samt.
Þá hellti ég vænni slettu af eplaediki og einhverju af ljósum/tyrkneskum rúsínum útí.

Leyfði þessu að malla í potti með loki í einhvern tíma. Svona 30-40 mínútur…

Rófufranskar og avókadómauk finnið þið svo í póstinum hér;)

Verði ykkur að góðu:)

2 Comments Add yours

  1. Helga says:

    Var með steiktar rófur og pönnusteiktar hvítlauksmarineraðar gellur sem barnamat í einni brúðkaupsveislunni,sagði börnunum að þetta væri kjúklinganaggar og franskar,,,,,til að fá þau til að smakka,,,svo sagði ég þeim sannleikann og þeim fannst þetta miklu betra.
    Svona hef ég þurft að gera við fullorðið fólk líka,,,,en þetta er gaman og gefandi

    Like

    1. Sigurveig says:

      Hljómar vel:) Var einmitt einhvern tímann með gellur hérna og naggar var það fyrsta sem kom í hugann! Þarf sem betur fer ekki að dulbúa neitt hér á bæ, en hef fulla samúð með þeim sem þess þurfa. Rófufranskarnar slógu aljgörlega í gegn og ég er ekki frá því að þær verði ansi oft með matnum. Miklu betri en “venjulegar” finnst mér.

      Like

Leave a Reply to Sigurveig Cancel reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s