Það er eitt og annað búið að vera að malla í pottum Matarkistunnar síðustu daga:)
Við erum búin að laga rauðkálið okkar góða eins og við gerum alltaf fyrir jólin.
Það lagði mikinn jólailm yfir allt, enda kryddað með kanil og negul og síðan er þurrkuð trönuber soðin með nýupptekna, íslenska rauðkálinu sem við fengum.
Rauðlaukur í balsamediki er ótrúlega góður með ýmsum mat.
Kjöti, ostum, pate og bara hverju sem er. Jafn góður með hamborgarhryggnum sem hamborgaranum, þannig að þessi krukka á eftir að klárast hratt:)
Og svo er það hátíðarchutneyið sem er nýjasta viðbótin.
Alls konar góðgæti í þessari krukku.
Eins og er, má nálgast þetta góðgæti í Melabúðinni, Kjöthöllinni Skipholti og Frú Laugu.
Krukkurnar voru enn heitar þegar ég fór með þær í gær og ég gæti trúað þær væru enn heitar þegar þær rjúka út!
Fer á fleiri staði í næstu viku og læt ykkur vita hvert.
JÓLA JÓLA!!!
Beggi minn smá fróðleikskorn frá Sigurveigu
Sent from my iPad
LikeLike