Hrós dagsins….

DSC_0037

….fær þessi hamborgari….

Svo sem ekkert svakalega flókin uppskrift sem hér fylgir, en hún virkar.

Þetta voru 140 gramma hamborgarar sem ég kippti með í Kjöthöllinni á leiðinni heim.
Kryddaðir með sjávarsalti, hvítum pipar, svörtum pipar og gulu sinnepsdufti.

Einhvern veginn hef ég komist að þeirri niðurstöðu að 140 gramma hamborgarar séu málið.
Það er líka hægt að fá 90 gramma (sem mér finnst of litlir) og 200 gramma (sem mér finnst of stórir).
En þetta er líklegast bara smekksatriði:)

Steikti þá úr blöndu af smjöri og ólívuolíu á vel heitri pönnu.

Mér finnst best að steikja þá vel á annarri hlið, snúa þeim við og setja ostinn nokkurn veginn strax ofaná.
Lokið síðan strax á pönnuna (svo osturinn bráðni almennilega ) og lækka undir.

Rauðlaukinn gerði ég í gær. Hann lenti þá í salati með túnfisk, soðnum kartöflum og fetaosti.
En hann passar samt með öllu einhvern veginn.

Skar rauðlaukinn sem sé í sneiðar og setti í ofn ásamt ólívuolíu, balsamediki og sjávarsalti.
Hafði hann á svona 160-170 gráðum í þónokkra stund. Hrærði í honum við og við.

Svo er þarna stappað avókadó.
Bara stappað með smávegis af sítrónusafa.
Ekki flókið, en avókadóið þarf hins vegar að vera fullkomlega þroskað.
Ég kaupi yfirleitt nokkur í einu og sting þeim í skál með banönum.

Þegar þau eru þroskuð og fín, fara þau í ísskápinn. Þar geymast þau nokkuð vel.
Allavega 5-6 daga ef ekki lengur.

Kokteilsósan er einföld. Sýrður rjómi, tómatsósa, sítrónusafi og sykur.

Ég nota frekar bragðmikla, lífræna tómatsósu frá Biona. Finnst hún langbest.

Já. Og beikon. Vel stökkt og gott.

Verði ykkur að góðu:)

2 Comments Add yours

  1. Rósa Halldórsdóttir says:

    Finnst uppskriftir þínar og framsetning spennandi, takk fyrir það. Verð þó oftast fyrir vonbrigðum þegar vantar tímasetningar eins og á gulrótunum um daginn. Þú gefur nákvæmar upplýsingar um allt nema tímasetningar í ofni. Og núna með rauðlaukinn “í þó nokkra stund”.

    Ég prófaði að gera gulræturnar en vissi ekki hvort ætti að vera í klst eða hálfa eða eina og hálfa. Ég er ágætis kokkur en langar í nýjungar en þarna verð ég bara óörugg. Fyrst þú ert með nákvæmar og fínar leiðbeiningar að spennandi réttum, munar þó nokkru að segja ca tíma? Með gulræturnar skrifaðir þú að þú hafi ekki munað hversu lengi og nú segirðu þetta með laukinn! Hvað þýðir “í þó nokkra stund”?

    Ef þú segir ca með tímann þá væri ég ánægð. Og kannski á það við um fleiri?

    Like

    1. Sigurveig says:

      Takk fyrir það:) Já…þetta með tímann. Held að ég þurfi að fara að að fá mér klukku hér á vegginn í eldhúsinu..haha. Held að málið sé það, að þegar ég var að læra að elda, þá voru kennararnir mjög harðir á því að gefa ekki upp tímasetningar heldur átti að læra að vega og meta hvort maturinn væri tilbúinn eða ekki útfrá áferð, lit og þess háttar. Þess vegna er ég oft svo lítið að spá í tímann-veit bara þegar eitthvað er tilbúið. Ofnar eru líka oft svo mismunandi kraftmiklir og fljótir. En ætli þó nokkra stund sé ekki svona 45-50 mínútur.Er bara svo mikið í “zen-inu” mínu hérna í eldhúsinu og lítið að horfa á klukkuna eða spá hvort ég ætli að henda inn uppskrift þegar ég er að elda. Reyni að bæta mig í þessu með tímasetningarnar:)

      Like

Leave a comment